Sýning í Akranesvita 2.– 29. júlí 2018
Myndlistarmennirnir og hjónin Anna G. Torfadóttir og Gunnar J. Straumland verða með myndlistasýningu í Akranesvita 2.– 29. júlí 2018. Sýningin er tileinkuð hænunni Belindu. Á opnuninni mun Gunnar kveða rímur kl. 16.30 og Alma Rut mun syngja nokkur írsk lög klukkan 17.00.
Sýningin er á 3 hæðum vitans, ljósmyndagrafík, grafíkverk og vatnslitamyndir. Allar myndirnar eru til sölu.
Nordatlantisk Hus i Odense
Dagana 27. ágúst – 26. október 2015 voru myndir Önnu til sýnis í Norður Atlantshafshúsinu í Óðinsvéum í Danmörku. Myndirnar voru sérstaklega gerðar fyrir sýninguna. Myndirnar er hægt að skoða hér.
Hér er linkur í umfjöllun um sýninguna á vef Norður Atlandshafs hússins.
Við opnunina 27. ágúst söng dóttir Önnu, Alma Rut Krisjánsdóttir íslensk lög við gítarundirleik Christian Warburg.